Enski boltinn

Stones hjá Everton til ársins 2019

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
John Stones leikur á Ricky van Wolfswinkel, þáverandi leikmann Norwich.
John Stones leikur á Ricky van Wolfswinkel, þáverandi leikmann Norwich. Vísir/Getty
Varnarmaðurinn John Stones hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Everton. Stones fylgir þar með í fótspor Ross Barkley og Seamus Coleman sem skrifuðu báðir undir langtíma samninga við Everton fyrr í sumar.

Stones, sem er tvítugur, lék 26 leiki með Everton á síðustu leiktíð, en hann kom inn í byrjunarlið liðsins undir lok leiktíðarinnar eftir að fyrirliðinn Phil Jagielka meiddist.

Stones kom til Everton frá Barnsley í janúar 2013, en talið er að Everton hafi borgað í kringum þrjár milljónir punda fyrir hann.

Hann lék sína fyrstu landsleiki fyrir England í vor.


Tengdar fréttir

Stoltur af þátttöku Everton

Roberto Martinez er stoltur af því þrír leikmenn frá Everton séu í enska landsliðshópnum á Heimsmeistaramótinu.

Lukaku genginn til liðs við Everton fyrir metfé

Belgíski framherjinn varð í kvöld dýrasti leikmaðurinn í sögu Everton þegar félagið greiddi 28 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Fyrra metið átti liðsfélagi hans hjá belgíska landsliðinu, Marouane Fellaini sem Everton greiddi 15 milljónir fyrir.

Bosníumaður til Everton

Everton hefur fest kaup á Bosníumanninum Muhamed Besic frá Ferencvaros í Ungverjaland.

Naismith gefur atvinnulausum miða á völlinn

Skoski landsliðsmaðurinn Steven Naismith hjá enska úrvalsdeildarliðinu Everton hefur keypt miða á heimaleiki Everton í vetur til að gefa atvinnulausum víðsvegar um Liverpool.

Martinez framlengdi til 2019

Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, skrifaði undir nýjan langtímasamning við félagið í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×