Wilshere: Redknapp ætti að hafa smá samúð Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. september 2014 12:00 Jack Wilshere. vísir/getty
Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta, er orðinn þreyttur á endalausri gagnrýni í sinn garð, þá sérstaklega frá Jamie Redknapp sem starfar sem sérfræðingur Sky Sports. Wilshere hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin ár vegna meiðsla og aðeins spilað 21 landsleik síðan hann kom fyrst við sögu hjá Englandi fyrir fjórum árum. Hann hefur ekki náð þeim hæðum sem flestir bjuggust við og hafa fyrrverandi landsliðsmenn á borð við Paul Scholes, JamieCarragher og Jamie Redknapp gagnrýnt hann nokkuð harkalega undanfarna mánuði. „Vandamál Jack Wilshere er Jack Wilshere. Hann er bara ekki að standa sig. Hann verður að taka meiri ábyrgð í leikjum eins og hann gerði fyrir tveimur árum. Afsakanir duga ekki lengur,“ sagði Redknapp um Wilshere á dögunum. Þessi gagnrýni fór fyrir brjóstið á Wilshere sem finnst Redknapp eiga að sýna meiri skilning á stöðu Arsenal-mannsins. Redknapp glímdi sjálfur við mikið af meiðslum á sínum ferli og þurfti að leggja skóna á hilluna vegna þeirra aðeins 31 árs gamall. „Ég hlusta á það sem fólk sem ég vinn með mér segir. En með fullri virðingu finnst mér að Redknapp ætti að hafa smá samúð. Hann var meira meiddur en ég,“ sagði Wilshere við blaðamenn eftir æfingu enska landsliðsins. „Það er auðvelt fyrir hvern sem er að fara í sjónvarpið og segja að þessi og hinn eigi að gera hitt og þetta. En þegar litið er til baka þá var Redknapp jafnmikið meiddur og ég og kannski meira. Hann var samt aldrei meiddur á sama aldri og ég. Það tekur mikinn andlegan styrk að koma alltaf til baka.“ „Ég hlusta því ekkert á þegar menn í sjónvarpinu segja að ég eigi að gera hlutina svona eða öðruvísi. Ég hlusta á menn eins og landsliðsþjálfarann og Gary Neville - menn sem tala af viti og geta hjálpað mér að þróa minn leik,“ sagði Jack Wilshere.
Enski boltinn Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira