Enski boltinn

Talisca undir smásjánni hjá Chelsea

Anderson Talisca.
Anderson Talisca. vísir/getty
Anderson Talisca hefur slegið í gegn hjá Benfica í portúgölsku deildinni í haust.

Þessi tvítugi strákur er markahæstur í Portúgal, búinn að skora 8 mörk í 10 leikjum en Benfica hefur tveggja stiga forystu á Vitória de Guimarães.  

Talisca skoraði fyrsta mark sitt í Meistaradeildinni í síðustu umferð þegar Benfica vann Monaco, 1-0.

Benfica keypti strákinn á 4 milljónir evra en líklegt er að hann staldri stutt við hjá félaginu.  Nú hefur Chelsea sýnt honum áhuga og talið er líklegt að hann leysi Didier Drogba af hólmi en Fílabeinsstrandarmaðurinn gerði 12 mánaða samning við Lundúnaliðið fyrir þessa leiktíð.

Chelsea hafði áhyggjur af því að erfitt yrði að fá atvinnuleyfi fyrir Anderson Talisca en strákurinn var valinn í brasilíska landsliðið og gæti spilað sinn fyrsta landsleik í kvöld þegar Brasilíumenn mæta Tyrkjum í vináttuleik í Tyrklandi.  

Um leið og Talisca spilar með landsliðinu verður auðveldara að fá atvinnuleyfi fyrir hann í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×