Enski boltinn

Þrumufleygur Rosicky dugði til gegn Tottenham

Chamberlain á ferðinni í dag.
Chamberlain á ferðinni í dag. vísir/getty
Arsenal komst í dag upp að hlið Liverpool í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar er liðið vann sætan 0-1 útisigur á Tottenham.

Það var rétt rúm mínúta liðin af leiknum er Arsenal komst yfir. Markið var líka af dýrari gerðinni. Tomas Rosicky með neglu hægra megin í teignum sem söng í markvinklinum. Stórkostlegt mark.

Þrátt fyrir ágætis tilburði beggja liða þá tókst liðunum ekki að bæta við marki.

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði síðustu 20 mínútur leiksins fyrir Tottenham en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.

Tottenham er í fimmta sæti deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×