Moyes ætlar að endurnýja Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 9. febrúar 2014 13:30 Tímabilið hefur verið erfitt fyrir Moyes vísir/getty
David Moyes knattspyrnustjóri Manchester United ætlar að gera miklar breytingar á liði sínu næsta sumar ef eitthvað er að marka fjölmiðla á Englandi nú í morgun. Reiknað er með að Moyes freisti þess að kaupa leikmenn fyrir allt að 100 milljónir punda.Nemanja Vidic mun yfirgefa Old Trafford í sumar og er hann fyrsti að allt að tíu leikmönnum sem munu yfirgefa félagið. Meðal annarra leikmanna sem Moyes er talinn vilja losa sig við í sumar eru Rio Ferdinand, Rafael, Nani, Anderson, PatriceEvra, ShinjiKagawa og AlexanderButtner. Manchester United er úr leik í titilbaráttunni í ár og hefur Moyes úr allt að 150 milljónum punda að ráða til að styrkja félagið fyrir komandi tímabil. Moyes keypti Mata frá Chelsea í janúar en þarf að styrkja liðið aftar á vellinum ætli liðið að nálgast keppinauta sína á nýjan leik. Meðal þeirra sem Manchester United er talið vera tilbúið að bjóða í eru LukeShaw, JoelVetman, PaulPogba, ArturoVidal og DiegoCosta. Pogba og Vidal leika á miðjunni hjá Juventus og gætu kostað allt að 60 milljónir punda. Pogba var á mála hjá Manchester United áður en hann fór til Juventus og sjá margir á Old Trafford eftir Frakkanum efnilega. Joel Veltman er ungur og efnilegur miðvörður hjá Ajax og Luke Shaw er annar mjög efnilegur varnarmaður sem leikið hefur frábærlega með Southampton á leiktíðinni. Framherjinn Diego Costa hefur farið á kostum hjá Atletico Madrid á leiktíðinni og og ljóst að hann kæmi ekki ódýrt til Manchester. Allt eru þetta eftirsóttir leikmenn sem Manchester United þyrfti að berjast við sterk félög um en ljóst að er Moyes hefur úr þeim peningum að ráða sem þarf til að styrkja félagið fyrir næsta tímabil.
Enski boltinn Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Fótbolti Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira