Enski boltinn

Erum sjálfir hissa á því hversu vel við erum að spila

Luis Suarez.
Luis Suarez. vísir/getty
Hinn sjóðheiti framherji Liverpool, Luis Suarez, viðurkennir að frábært gengi Liverpool í vetur komi honum á óvart.

Suarez átti ekki von á því að liðið myndi keppa af fullum krafti og Englandsmeistaratitilinn í vetur. Liverpool er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar og á aðeins eftir að spila þrjá leiki.

"Ef við yrðum meistarar þá værum við að ná árangri sem enginn hafði trúað. Sannleikurinn er að við erum sjálfir hissa á því hversu vel við erum að spila," sagði Suarez.

"Við erum með góða leikmenn sem hafa undirstrikað af hverju þeir eru að spila með Liverpool. Það væri sannarlega ótrúlegt ef við næðum að vinna deildina miðað við hvað Chelsea, Man. City og Arsenal hafa eytt. Meira að segja Tottenham hefur eytt yfir 100 milljónum punda.

"Við höfum eytt litlu og miðað við þá staðreynd yrði ótrúlegt ef við vinnum titilinn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×