Mark Gylfa dugði ekki til gegn Liverpool | Sjáðu mörkin 29. desember 2014 15:04 Moreno fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Liverpool er komið upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur, 4-1, á Swansea í kvöld. Swansea færist niður í níunda sætið. Liverpool spilaði mjög vel í fyrri hálfleik og það var fyllilega verðskuldað er Moreno kom heimamönnum yfir. Komst í dauðafæri. Skotið ekki gott en inn fór boltinn. 1-0 í hálfleik og leikar æstust í síðari hálfleik. Swansea byrjaði síðari hálfleikinn skelfilega er markvörður þeirra, Fabianski, skaut boltanum í Adam Lallana og af honum fór boltinn í markið. Ævintýralega klaufalegt. Swansea neitaði að gefast upp og Gylfi Þór Sigurðsson minnkaði muninn skömmu síðar með skoti af stuttu færi. Liverpool var næstum komið í 3-1 skömmu síðar er Sterling komst í dauðafæri en skot hans fór í stöngina. Þriðja markið kom þó hálftíma fyrir leikslok. Frábær sprettur hjá Lallana inn í teiginn og afgreiðslan til fyrirmyndar. Rothöggið kom 22 mínútum fyrir leikslok er Jonjo Shelvey ákvað að setja boltann í eigið mark á sínum gamla heimavelli. Þó svo allt hafi verið í blóma hjá Liverpool þá hljóp Raheem Sterling kapp í kinn og hann sló til leikmanns Swansea. Aðstoðardómarinn sá atvikið en gerði ekkert í því. Sterling stálheppinn að hanga inn á vellinum. Gylfi var ekki fjarri því að leggja upp mark sjö mínútum fyrir leikslok. Frábær sending á Gomis en skot hans fór í vinkilinn. Swansea óheppið þar. Liverpool heilt yfir mun sterkara liðið og átti sigurinn fyllilega skilið. Spurning hvort það sé að kvikna á liðinu á nýjan leik?1-0 fyrir Liverpool. Moreno skorar. Lallana skorar eftir ævintýralegan klaufaskap hjá Fabianski. Gylfi minnkar muninn fyrir Swansea. Smekklegt mark hjá Lallana. 3-1. Sjálfsmark Shelvey. 4-1.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Fleiri fréttir Nottingham Forest - Manchester City | Mæta City-menn þungir til leiks? Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjá meira