Enski boltinn

Misstirðu af mörkum helgarinnar í enska? | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Edin Dzeko skoraði tvö mörk gegn Everton.
Edin Dzeko skoraði tvö mörk gegn Everton. Vísir/Getty
Það dró til tíðinda í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina en Fulham og Íslendingaliðið Cardiff féllu eftir stór töp í 36. umferðinni. Níu leikir fóru fram í deildinni um helgina og má sjá mörkin úr þeim öllum í myndböndunum hér að neðan.

Ole Gunnar Solskjær og lærisveinar hans í Cardiff steinlágu fyrir Newcastle, 3-0, en þar gengu stuðningsmenn heimamanna af velli á 69. mínútu til að mótmæla eignarhaldi félagsins.

Fulham tapaði 4-1 fyrir Stoke og er fallið en Sunderland er í mun betri málum í fallbarátunni eftir 1-0 útisigur gegn Manchester United. Giggs-áhrifin virkuðu ekki lengi þar á bæ eftir fínan 4-0 sigur á Norwich í fyrsta leik undir stjórn goðsagnarinnar á Old Trafford.

Manchester City færist nær Englandsmeistaratitlinum en liðinu dugar líklega að vinna tvo síðustu leiki sína til að verða meistari eftir 3-2 sigur á Everton á útivelli á laugardaginn.

West Ham - Tottenham 2-0 Aston Villa - Hull 3-1 Man. Utd - Sunderland 0-1 Newcastle - Cardiff 3-0 Stoke - Fulham 4-1 Swansea - Southampton 0-1 Everton - Man. City 2-3 Arsenal - West Brom 1-0 Chelsea - Norwich 0-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×