Adebayor með tvö mörk í stórsigri Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2014 21:42 Emmanuel Adebayor fagnar öðru marka sinna. Vísir/Getty
Emmanuel Adebayor skoraði tvö mörk fyrir Tottenham í 4-0 útisigri á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en með þessum sigri eru Gylfi Þór Sigurðsson og félagar farnir að anda ofan í hálsmálið á Liverpool-mönnum í baráttunni um fjórða sætið. Emmanuel Adebayor hefur heldur betur verið Tottenham mikilvægur síðan að Tim Sherwood gaf honum tækifærið en Tógómaðurinn skoraði einnig sigurmarkið á móti Everton um síðustu helgi og hefur alls skorað 8 mörk í 10 deildarleikjum undir stjórn Sherwood. Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Tottenham í þessum leik eftir að hafa meiðst á æfingu á dögunum. Gylfi hefur verið lítið með liðinu það sem af er þessu ári. Emmanuel Adebayor skoraði fyrsta markið á 19. mínútu eftir mistök Tim Krul í marki Newcastle og Paulinho bætti við öðru marki á 53. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti Adebayor. Adebayor skoraði annað mark sitt á 82. mínútu eftir að umræddur Krul hafði varið langskot Andros Townsend upp í loftið. Belginn Nacer Chadli innsiglaði síðan sigurinn undir lokin með sínu fyrsta marki í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Hver er staðan og hvað tekur við? Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Rýr svör um stóru mistökin sem hefðu getað haft áhrif á Ísland Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira