Eitthvað að drengnum þegar hvorki Sir Alex né Stóri Sam ráða við hann Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. desember 2014 13:45 Ravel Morrison. vísir/getty
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri QPR í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, viðurkennir að hann sé opinn fyrir því að semja við vandræðagemsann Ravel Morrison, leikmann West Ham. Morrison gekk í raðir Hamranna frá Manchester United árið 2012 þegar Sir Alex Ferguson fékk nóg af honum, en hann hefur átt í vandræðum með að festa sér sæti í byrjunarliði Stóra Sam. Miðjumaðurinn ungi var lánaður til Cardiff í byrjun tímabilsins en kom aftur til West Ham fyrr í þessum mánuði. Hann spilaði aðeins sjö leiki fyrir Cardiff. Morrison var á láni hjá QPR á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að vinna sér inn sæti í úrvalsdeildinni á þeim þremur mánuðum sem hann var þar. „Ég er hrifinn af Ravel. Hann kom til mín á síðasta tímabili og ég átti ekki í neinum vandræðum með hann,“ sagði Redknapp við talkSPORT, en Morrison hefur átt í miklum vandræðum utan vallar. „Það er eitthvað að drengnum þegar hvorki Sir Alex Ferguson né Sam Allardyce ráða ekki við hann. Hann þarf að koma hausnum í lag. En Ravel er hæfileikaríkur piltur og var gulls ígildi fyrir okkur á síðustu leiktíð.“ „Hann er góður strákur og rosalega góður í fótbolta. Við getum ekki keypt neina leikmenn þannig við erum að horfa til þess að fá einhverja að láni. Hann er leikmaður sem mér hefur verið bent á. Við munum skoða það ef West Ham lætur hann fara,“ sagði Harry Redknapp.
Enski boltinn Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Sjá meira