Enski boltinn

Pellegrini: Gerrard er frábær leikmaður

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steven Gerrard hefur spilað allan sinn feril með Liverpool.
Steven Gerrard hefur spilað allan sinn feril með Liverpool. vísir/getty
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, gaf í skyn í viðtali eftir sigurinn á Manchester United í dag að hann sé reiðubúinn að gera StevenGerrard, fyrirliða Liverpool, tilboð næsta sumar.

Gerrard rennur út á samningi eftir tímabilið og hefur ekki enn gengið frá nýjum samningi við liðið sem hann hefur spilað fyrir í 16 ár.

Hann gaf það sjálfur út á dögunum að hann myndi íhuga að spila fyrir annað lið fái hann ekki samning hjá Liverpool áður en næsta leiktíð hefst.

Pellegrini er alveg sama þó Gerrard sé orðinn 34 ára gamall, en hann fékk FrankLampard á láni í nokkra mánuði áður en hann heldur til New York. Lampard er 36 ára.

„Ég met leikmenn ekki eftir aldri. Þetta fer eftir því hvað menn kosta og til hversu margra ára samningar eru gerðir,“ sagði Pellegrini.

„Rétt eins og Frank Lampard þá er Steven Gerrard topp leikmaður sem getur haldið áfram að spila á meðal þeirra bestu í nokkur ár til viðbótar,“ segir Manuel Pellegrini.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×