Tottenham komið í þriggja stiga áskrift á Old Trafford Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. janúar 2014 16:41 Nordic Photos / Getty
Manchester United féll á enn einu prófinu á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í vetur þegar Tottenham vann 2-1 sigur. Leikur liðanna á Old Trafford var nokkuð fjörugur og skemmtilegur. Emmanuel Adebayor kom gestunum yfir með snyrtilegu skallamarki eftir fyrirgjöf Danans Christian Erikssen á 34. mínútu. Gestirnir fengu betri færi í fyrri hálfleiknum og forystan verðskulduð. Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Spurs vegna meiðsla en það kom ekki að sök hjá gestunum. Eriksen nýtti sér sofandahátt Antonio Valencia á 66. mínútu og skallaði boltann í netið af stuttu færi og kom Spurs í 2-0. Fagnaðarlæti Tim Sherwood og lærisveina hans vörðu þó aðeins í nokkrar sekúndur því Danny Welbeck minnkaði muninn strax í næstu sókn. Reiknuðu einhverjir með því að sígildur viðsnúningur af hendi United væri handan við hornið en svo var ekki. Þeir rauðklæddu komust nokkrum sinnum nærri því að skora. Danny Welbeck rann til í dauðafæri inni á vítateig, Nemanja Vidic skallaði yfir og Hugo Lloris varði skot Javier Hernandez af stuttu færi. Allt kom fyrir ekki og Tottenham vann sinn annan sigur í röð á Old Trafford í deildinni. Liðið vann 3-2 sigur í viðureign liðanna á sama stað í fyrra. Fram til þess hafði Lundúnaliðið ekki unnið í deildinni á Old Trafford frá árinu 1989. Tottenham hefur nú 37 stig í 6. sæti en United 34 stig í 7. sæti.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira