Enski boltinn

Gerrard: Suárez sá besti sem ég hef spilað með

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luis Suárez er búinn að skora 31 mark í úrvalsdeildinni.
Luis Suárez er búinn að skora 31 mark í úrvalsdeildinni. Vísir/Getty
Luis Suárez, framherji Liverpool, heldur áfram að safna að sér einstaklingsverðlaunum fyrir frammistöðu sína á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrr í mánuðinum var hann útnefndur besti leikmaður deildarinnar að mati leikmanna og blaðamanna og svo fékk hann þrenn verðlaun til viðbótar á lokahófi Liverpool í gærkvöldi.

Þar var hann kjörinn besti leikmaður Liverpool á leiktíðinni að mati leikmanna og stuðningsmanna auk þess sem hann fékk verðlaun sem markahæsti leikmaðurinn.

Úrúgvæinn er búinn að skora 31 mark í úrvalsdeildinni á leiktíðinni en ólíklegt þykir nú að liðið verði Englandsmeistari eftir að liðið kastaði frá sér sigri gegn Crystal Palace á mánudagskvöldið.

"Luis hirðir nú hver verðlaunin á fætur öðrum. Við erum heppnir að vera með svona heimsklassa leikmann í liðinu sem reynir að hjálpa okkur að afreka eitthvað," segir fyrirliðinn StevenGerrard um markavélina.

"Hann er besti leikmaðurinn sem ég hef spilað með, með fullri virðingu fyrir öllum. Ég hef spilað með góðum leikmönnum hjá Liverpool og landsliðinu en þessi maður getur gert allt. Hann er öðruvísi en flestir fótboltamenn. Ég þarf ekkert að ræða hæfileika hans en fyrir utan það þá er hann líka baráttuhundur sem gefst aldrei upp," segir Steven Gerrard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×