Enski boltinn

AZ í lykilstöðu eftir 3-0 sigur á Alfreð og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson fagnar hér einu marka AZ með félögum sínum.
Jóhann Berg Guðmundsson fagnar hér einu marka AZ með félögum sínum. Vísir/Getty
AZ Alkmaar er í góðum málum eftir 3-0 sigur á heimavelli í kvöld í fyrri leiknum á móti Heerenveen í hollenska umspilinu um laust sæti í Evrópudeildinni í fótbolta á næstu leiktíð.

AZ Alkmaar lagði grunninn að sigrinum með þremur mörkum í fyrri hálfleik en þau skoruðu þeir Celso Ortíz og Steven Berghuis auk þess að þriðja markið var sjálfsmark.

Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir AZ Alkmaar en Aron Jóhannsson var ekki með vegna meiðsla. Alfreð Finnbogason, markakóngur hollensku deildarinnar í ár, var tekinn af velli í hálfleik.

Seinni leikurinn verður á heimavelli Heerenveen um næstu helgi en það lið sem hefur betur í þessum tveimur leikjum mætir annaðhvort Groningen eða Vitesse í úrslitum umspilsins. Groningen vann fyrri leikinn 1-0 á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×