Portúgalanum sem United vill fá er frjálst að fara Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. júlí 2014 10:45 William Carvalho á leið til Englands? vísir/getty
Augusto Ignacio, framkvæmdastjóri portúgalska liðsins Sporting, segir að liðið sé opið fyrir því að selja miðjumanninn WilliamCarvalho í sumar, en Manchester United er sagt afar áhugasamt um að landa honum. Fréttir í Portúgal herma að forráðamenn United hafa nú þegar átt í viðræðum við Sporting um kaup á þessum 22 ára gamla leikmanni. „Þetta er ekki eins og í gamla daga þegar leikmenn yfirgáfu Sporting fyrir hvaða upphæð sem er,“ segir Ignacio í viðtali á heimasíðu félagsins. „Við höfum ekki áhyggjur af því að missa William Carvalho því við erum með aðra leikmenn sem eru tilbúnir að spila.“ „Riftunarverð hans tryggir Sporting mikinn pening þannig ég er ánægður með hvernig viðræðurnar ganga. Það er ekki auðvelt að standa í svona samningaviðræðum en við erum með forseta sem veit hvernig á að semja og veit hvað er best fyrir félagið,“ segir Augusto Ignacio. William Silva de Carvalho, eins og hann heitir fullu nafni, fæddist í Angóla 1992 en flutti með foreldrum sínum til Portúgal þegar hann var ungabarn. Hann hefur leikið allan sinn feril með Sporting en tvívegis verið lánaður; til Fátima 2011 og Cercle Brugge 2012-2013. Carvalho er varnarsinnaður miðjumaður og á að baki sex landsleiki fyrir Portúgal. Tveir þeirra voru á HM í Brasilíu, en þar kom hann inn á gegn Bandaríkjunum og spilaði svo allan leikinn gegn Gana.
Enski boltinn Mest lesið Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Enski boltinn Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Enski boltinn Sá glitta í þá Söru Sigmunds sem við þekkjum svo vel Sport Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Enski boltinn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Enski boltinn Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið Íslenski boltinn Sjáðu klaufalegu mörkin sem Fram gaf frá sér Sport Vildi halda áfram með Stólana Körfubolti Hélt boltanum á lofti í 28 klukkutíma Fótbolti Leikmaður Barcelona fékk nýfætt barn í fangið frá stuðningsmanni Fótbolti Fleiri fréttir Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Mbuemo sagður vilja fara til Manchester United Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Man. City vill fá bakvörð frá Úlfunum Beckham óánægður með hegðun leikmanna Manchester United Hákon mun slást við Kelleher um stöðuna Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Arsenal í viðræðum við Leipzig vegna Šeško Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Fyrrum aðstoðarmaður Klopp aðstoðar Guardiola á næsta tímabili Ungu strákarnir björguðu andliti Man United í Hong Kong „Auðveld ákvörðun“ þegar hann heyrði af áhuga Liverpool Enn hærra metboð frá Liverpool Trent með á HM og Liverpool fær væna summu Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool Fyrirliði Man. Utd íhugar alvarlega risatilboð frá Sádi-Arabíu Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho Enginn labbaði meira en verðandi leikmaður Man United Arsenal að sækja miðjumann þó það sárvanti framherja Henry segir að Arsenal hafi ekki staðið undir væntingum United niðurlægt í Malasíu Leita til Liverpool að nýjum kollega Hákonar Stuðningsmenn Chelsea köstuðu glösum og stólum í Póllandi „Án Meistaradeildarinnar þurfum við ekki stóran leikmannahóp“ Forstjóri Liverpool þakkar stuðningsmönnum sem hjálpuðu hver öðrum Niðurbrotinn Klopp í sjokki Sjá meira