Stoke heldur áfram að stríða toppliðunum - vann Arsenal í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2014 14:30 Jon Walters fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Stoke er erfitt heim að sækja og því fengu Arsenal-menn enn á ný að kynnast í dag þegar Stoke vann 1-0 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Jon Walters skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu. Þetta er mikið áfall fyrir Arsenal-liðið og gæti verið afdrifaríkt í baráttu liðsins um enska meistaratitilinn. Chelsea nýtti líka tækifærið og náði fjögurra stiga forskoti á toppnum. Stoke City er búið að vinna bæði Chelsea og Manchester United á heimavelli sínum í vetur auk þess að gera jafntefli við Manchester City. Þetta var ennfremur fjórða árið í röð sem Arsenal tekst ekki að vinna á Brittania-leikvanginum í Stoke og það er fyrir löngu orðin til Stoke-grýla í herbúðum Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal. Laurent Kocsielny fékk á sig víti á 76. mínútu fyrir að handleika boltann í teignum og Jon Walters skoraði úr vítinu. Jon Walters var búinn að klikka á fjórum af síðustu sex vítaspyrnum sínum en fór samt óhræddur á vítapunktinn og skoraði af öryggi. Mesut Özil kom inn á í seinni hálfleik, lífgaði aðeins upp á sóknarleik liðsins og fékk eitt mjög gott færi en heilt yfir var þetta mjög slakur leikur hjá Arsenal-liðinu. Arsenal hefur verið að gefa eftir að undanförnu en liðið hefur aðeins náð að vinna einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og á þeim tíma hefur liðið misst toppsætið til Chelsea sem er með fjögurra stiga forskot eftir úrslit dagsins.Vísir/GettyVísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Fram - KR | Baráttan um annað sætið Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Sjá meira