Poyet ætlaði að skipta hetjunni útaf en hætti við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2014 10:00 Adam Johnson fagnar sigurmarki sínu. Vísir/AP
Gus Poyet, knattspyrnustjóri Sunderland, hætti við á síðustu stundu að taka Adam Johnson af velli þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gær og skömmu síðar tryggði Johnson Sunderland 1-0 sigur á Newcastle. Poyet ætlaði að setja Will Buckley inná fyrir Adam Johnson á 81. mínútu en tók þess í stað Connor Wickham af velli. „Ég ætlaði að taka Adam af velli en af einhverri ástæðu hætti ég við," sagði Gus Poyet. Adam Johnson skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir frábæra skyndisókn eftir horn hjá Newcastle-liðinu. „Ekki spyrja mig hvers vegna því ég hef ekki svarið. Heppnin var með okkur og Johnno skoraði sigurmarkið. Það má kalla þetta heppni en hún hefur ekki verið mikið með okkur í ár þannig að við áttum þetta inni," sagði Gus Poyet. Þetta var aðeins þriðji sigurleikur Sunderlands-liðsins á tímabilinu en liðið var hinsvegar að vinna nágrannana í Newcastle í þriðja leiknum í röð undir stjórn Gus Poyet. „Okkur tókst að halda sigurgöngunni áfram á móti Newcastle sem er frábært fyrir okkur en það voru stigin þrjú sem skipta öllu máli. Þessi sigur þýðir að þetta verða sérstök jól fyrir okkur," sagði Gus Poyet. Það má sjá sigurmark Adam Johnson hér fyrir ofan. Sigurmark Adam Johnson.Vísir/AP
Enski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira