Ferguson: Ósanngjarnt að Mourinho sé sigursæll og svona myndarlegur Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. desember 2014 10:45 José Mourinho hefur allt. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, hafði ekkert nema góða hluti að segja um José Mourinho, stjóra Chelsea, í heimildamynd sem sýnd verður á BT Sport á öðru degi jóla. Mourinho er einn albesti og sigursælasti knattspyrnustjóri sinnar kynslóðar, en hann vann Meistaradeildina með Porto og hefur í heildina unnið fjórtán stóra titla í fjórum löndum. Til viðbótar við það talar hann fimm tungumál reiprennandi; portúgölsku, spænsku, katalónsku, ítölsku og ensku. „Þetta er í raun ósanngjarnt. Hann er myndarlegur og kominn með svona George Clooney-stíl í hárið. En hann er líka frábær fyrirmynd og talar fimm tungumál,“ segir Ferguson. „Hann byrjar sem túlkur fyrir Bobby Robson og fylgir honum til Barcelona þar sem hann vinnur svo undir Louis van Gaal. Allan tímann er hann að læra. Hann ætlaði sér alltaf að verða þjálfari.“ „Hann hefur samt aldrei spilað leikinn. Og talandi um það, bendið mér á forseta liðs sem myndi gefa þjálfara starf sem hefur aldrei spilað leikinn. Það er ekki hægt. En Mourinho gerði það.“ „Síðan fer hann til lítils liðs í Portúgal og eftir það til Porto og vinnur deildina, Evrópukeppni félagsliða og Meistaradeildina. Eftir það vinnur hann deildina með Chelsea og svo Inter. Hann hefur sett fordæmi fyrir þá sem vilja standa sig vel. Menn eiga ekki að láta hindranir standa í vegi fyrir sér,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira