Líffæri seld í auknum mæli á svörtum markaði Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. desember 2014 22:09 vísir/ap
Fimmtán börnum hefur verið rænt í Bangladesh á undanförnu ári og myrt á hrottafengin hátt. Líffærin úr þeim voru í kjölfarið seld á svörtum markaði og að sögn íbúa aðhefst lögregla lítið sem ekkert. Skipulögð glæpasamtök notfæri sér neyð fátækra og örvæntingu þeirra sem þurfa á líffærum að halda. Börnin bjuggu öll á dreifbýlum svæðum og við mikla fátækt. Hinum sex ára gamla Harun-ur-Rashid var rænt 22.apríl síðastliðinn. Fimm dögum síðar fannst hann í votlendi í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, og búið var að selja úr honum nýrun. Þrír menn voru í kjölfarið handteknir en hafa enn ekki verið ákærðir. Fjölskylda drengsins býr í Tebaria, en þar ríkir mikil fátækt og slík voðaverk algeng. Faðir drengsins segir í samtali við fréttastofu Al Jazeera að hann óttist að ekkert muni breytast í þessum málum, of mikil spilling ríki. Það sé daglegt brauð að fólki sé rænt og að fólk gangi það langt að selja sjálft úr sér líffærin, bæði vegna fátæktar og ótta. Hinir fátæku hafi ekki tök á að ganga á eftir málinu sökum fjár- og tímaskorts, þar á meðal hann sjálfur. Í frétt Al Jazeera segir að lögreglu gangi hvorki né reki í að uppræta samtök sem stunda slíkan iðnað, sem fari stigvaxandi frá ári til árs. Lögregla neiti alfarið að tjá sig um málið, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fjölmiðla. Faðir drengsins segir það ekki koma sér á óvart, stjórnvöld leyfi slíkum glæpasamtökunum að þrífast. Nýrun eru sögð verðmætust og eru jafnan seld til vel efnaðra einstaklinga frá Vesturlöndum eða Mið-Austurlöndum sem greiða fyrir þau tugi milljóna.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Innlent Fleiri fréttir Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Sjá meira