Eigandi Leeds féll á eigendaprófinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2014 23:15 Massimo Cellino. Vísir/Getty
Massimo Cellino, eigandi enska félagsins Leeds United, má ekki koma nálægt stjórn félagsins næstu þrjá mánuðina eftir að hann féll á eigandaprófi ensku b-deildarinnar. Forráðamenn ensku b-deildarinnar fengu upplýsingar frá ítölskum dómstól sem hafði dæmt Massimo Cellino sekan um skattsvik. Hinn 58 ára gamli Massimo Cellino má því ekki hafa nein afskipti af félaginu til þar 18. mars á næsta ári en eftir það má hann stýra málum á Elland Road. Massimo Cellino var sektaður um 600 þúsund evrur í mars á þessu ári eftir að hafa verið dæmdur sekur að hafa ekki greitt skatt af skútu sinni. Cellino greiddi upp skuldir Leeds í sumar en þegar hann tók við í apríl var félagið að tapa í kringum einni milljón punda á mánuði. Hann tilkynnti á laugardaginn að hann ætli að henda tuttugu milljónum punda inn í félagið. Massimo Cellino er búinn að stýra Leeds í sjö mánuði en er samt á sínum fjórða knattspyrnustjóra. Brian McDermott hætti í maí og Dave Hockaday tók við. Dave Hockaday entist í aðeins sex leiki og Darko Milanic tók við af honum. Milanic var síðan rekinn í október eftir að liðinu tókst ekki að vinna í fyrstu sex leikjum undir hans stjórn. Neil Redfearn tók við liðinu af Slóvenanum og um síðustu helgi vann liðið sigur á toppliði Derby og komst upp í 15. sætið. Forráðamenn Leeds United ætla ekki að taka þessum úrskurði þegjandi og hljóðalaust því félagið ætlar að fara með málið fyrir dómstóla.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira