Enski boltinn

Kári spilar úrslitaleik á Wembley

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kári Árnason stendur vaktina í vörn Rotherham á Wembley eftir rúma viku.
Kári Árnason stendur vaktina í vörn Rotherham á Wembley eftir rúma viku. Vísir/Getty
Kári Árnason, landsliðsmaður í fótbolta, spilar úrslitaleik á Wembley á sunnudaginn eftir viku þegar Rotherham mætir Leyton Orient í leik um sæti í ensku B-deildinni.

Rotherham vann Preston í undanúrslitum á heimavelli sínum í kvöld, 3-1, en fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli. Kári og félagar unnu einvígið því samanlagt, 4-2.

Preston komst yfir í kvöld með marki PaulsGallaghers á 16. mínútu en Kári var hársbreidd frá því að jafna metin með skallamarki í næstu sókn. Hann lét aftur á móti verja frá sér.

Wesley Thomas jafnaði fyrir Rotherham á 24. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði LeeFrecklington, 2-1. KeiranAgard gerði svo út um einvígið, 3-1, með marki á 67. mínútu leiksins.

Úrslitaleikurinn fer fram sem fyrr segir á Wembley-leikvanginum í London. Leyton Orient hafnaði í þriðja sæti deildarinnar með 86 stig, jafnmörg stig og Rotherham en með betri markatölu.

Rotherham er nýliði í C-deildinni en liðið fær tækifæri til að komast upp um tvær deildir á tveimur árum á sunnudaginn eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×