United gæti slegið met City strax í janúar Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. nóvember 2014 09:45 Mats Hummels er einn besti miðvörður heims þegar hann er heill. vísir/getty
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, íhugar þessa dagana hvort hann eigi að gera þýska liðinu Dortmund tilboð í miðvörðinn Mats Hummels, að því fram kemur í frétt Guardian í dag. Manchester United þarf líkega að bæta met samborgara sinna í Manchester City til að fá Dortmund til að selja Hummels, en hann gæti kostað United vel yfir 40 milljónir punda. City setti nýtt met í kaupum á dýrasta varnarmanni ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi í sumar þegar það borgaði Porto 32 milljónir punda fyrir Frakkann Eliaquim Mangala. Ed Woodward, stjórnarformaður Manchester United, sagði á símafundi í vikunni þegar fyrsti ársfjórðungur nýs fjármálaárs var gerður upp, að félagið myndi engan kaupa nema það gæti fengið leikmenn sem eru á listanum fyrir næsta sumar. Einn þeirra er Mats Hummels sem á tvö ár eftir af samningi sínum við Dortmund næsta sumar. Þýska liðið er því í fínni samningsstöðu og getur fengið toppverð fyrir leikmanninn sem varð heimsmeistari með Þýskalandi í sumar. Hummels hefur verið mikið meiddur síðan að heimsmeistaramótinu lauk og þá hefur hann ekki verið jafn öflugur og áður við upphaf nýs tímabils. Dortmund er í fjórða neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar með aðeins tíu stig.
Enski boltinn Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Mjög hættulegur vítahringur að mati Arteta Henry ekki hrifinn af hegðun Arsenal-manna í leikslok Sádi-arabísk félög sögð vilja kaupa Mo Salah „Ekki gleyma mér“ Þrír sem Jökull þolir ekki: „Hann er algjört gerpi“ „Hvað getur Slot gert?“ „Endanlegt ippon fyrir Slot“ Ráðleggur leikmanni United að hætta sóa tíma sínum þar Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Bestu mörkin í desember 2006 verða vart toppuð: Scholes, Essien og Taylor Luke Littler fagnaði vel meðal stuðningsmanna Man. United Einmanalegt hjá Salah í ræktinni Alisson um Salah: „Afleiðing þess sem hann gerði“ Ofsótt af milljarðamæringi Sjáðu öll Manchester United-mörkin á Molineux í gær Carragher: „Ef Salah reynir að henda félaginu mínu undir rútuna veð ég í hann“ Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Sjá meira