Van Gaal: Blind ekki frá í sex mánuði Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. nóvember 2014 10:15 Louis Van Gaal. vísir/getty
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að meiðsli hollenska miðjumannsins Daley Blind séu ekki jafn alvarleg og haldið var í fyrstu. Blind fór af velli meiddur í 6-0 sigri Hollands gegn Lettlandi og haldið var að hann yrði frá í allt að sex mánuði. Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Hollands, var mjög svartsýnn eftir leikinn og hélt að liðband í hné Blind væri slitið. „Hann er með spelku á hnénu. Nú hvílir hann í tíu daga og fer svo í aðra myndatöku. Þá kemur þetta betur í ljós,“ sagði Van Gaal á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á morgun. „Þetta er ekki jafn alvarlegt og læknarnir héldu eftir leikinn, en hann verður lengi frá held ég. Samt ekki sex mánuði eða svo.“ Ángel di María og David De Gea, sem báðir meiddust í landsleikjavikunni, eru klárir í slaginn fyrir laugardaginn en Luke Shaw og Michael Carrick eru tæpir. „Ég þarf að sjá hvernig Carrick bregst við æfingunni á morgun, en ég býst við að hann verði klár í slaginn,“ sagði Van Gaal. Phil Jones, Marcos Rojo, Jonny Evans, Rafael og Radamel Falcao voru ekki með gegn Crystal Palace í síðustu umferð og er líklegt að þeir verði allir upp í stúku á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira