Enski boltinn

Betra að spila bara á útivelli

Emmanuel Adebayor.
Emmanuel Adebayor. vísir/getty
Leikmenn Tottenham eru sárir út í stuðningsmenn liðsins sem baula á þá.

Eins og flestum ætti að vera kunnugt um hefur Spurs ekkert getað í vetur og stuðningsmenn liðsins hafa verið óhræddir við að lýsa vanþóknun sinni á liðinu með baulum.

Liðið var baulað að velli í hálfleik og eftir leik gegn Stoke um helgina.

„Er maður spilar á heimavelli vill maður fá stuðning frá sínu fólki. Nú gengur illa og þetta er eins og fjölskyldan vilji ekki fá mann heim," segir framherji liðsins, Emmanuel Adebayor, en hann er alls ekki nógu kátur með hegðun stuðningsmannanna.

„Það er það versta sem getur gerst því maður getur ekki farið neitt annað. Þetta tekur á leikmennina og kannski væri betra að spila bara á útivelli því þá vitum við fyrirfram að það verður baulað á okkur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×