Enski boltinn

Messan: Mata er eins og Íslendingarnir í sumum liðum

Juan Mata var maðurinn sem kom Man. Utd til bjargar um síðustu helgi og það var vel talað um hann í Messunni.

„Juan Mata bjargar Man. Utd á vissan hátt. Það er auðvelt að taka Mata greyið úr liðinu því þetta er vel upp alinn strákur sem kvartar ekki og kveinar," segir Hjörvar Hafliðason um Spánverjann Juan Mata.

„Hann er svona eins og Íslendingarnar í sumum liðum. Góðir gæjar sem eru oft teknir af velli eftir klukkutíma ef þeir hafa ekki skorað eða lagt upp. Mata er svolítið eins og Gylfi Sigurðsson. Drullunæs náungi sem er aldrei með nein leiðindi. Stjórarnir eru oft hræddari við fýlupúkana."

Innslagið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×