Enski boltinn

Dóttir John Terry skoraði fyrir Chelsea

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Summer Terry.
Summer Terry. Mynd/Instagram-síða John Terry
Summer Terry er einn af nýju leikmönnum Chelsea en hún spilaði sinn fyrsta leik yfir undan níu ára lið félagsins á dögunum.

Það sem gerir þessa framtíðarfótboltakonu svolítið merkilegri en jafnaldra hennar er að hún er dóttir John Terry, fyrirliði aðalliðs Chelsea og líklega merkasta leikmann félagsins fyrr og síðar.

Summer Terry skoraði eitt marka Chelsea í 12-2 sigri og pabbinn fylgdist stoltur með á hliðarlínunni og birti síðan mynd af sinni stelpu á Instagram.

„Ég er svo stoltur af Summer, fyrir að ganga til liðs við Chelsea og spila í sömu treyju og pabbi sinn," skrifaði John Terry undir myndina á instagram.

Summer Rose Terry er tvíburi en bróðir hennar heitir Georgie John og þau eru fædd 18. maí 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×