Enski boltinn

Gjaldþrota James með uppboð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
David James, fyrrum markvörður og aðstoðarþjálfari ÍBV, hefur sett ýmsa muni á uppboð vegna gjaldþrots síns fyrr á árinu.

James var lýstur gjaldþrota í maí síðastliðnum þrátt fyrir að hafa þénað vel á löngum knattspyrnuferli sínum, þar sem hann lék með meðal annars með Liverpool, Manchester City og Portsmouth.

Hann er 44 ára gamall en lék sem kunnugt er með ÍBV í Pepsi-deild karla sumarið 2013 auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari Hermanns Hreiðarssonar hjá liðinu.

James er í dag starfandi knattspyrnustjóri Kerala Blasters FC í Indlandi auk þess sem hann spilar með liðinu. Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa skuldirnar hrannast upp eftir að hann skildi við eiginkonu sína árið 2005.

Hann hefur sett alls 150 muni á uppboð en þar á meðal má finna áritaðar treyjur, stuttbuxur og bolta, bæði úr ensku úrvalsdeildinni og stórmótum í knattspyrnu.

James er einnig með plötuspilara, bækur, vínylplötur, bíl, NFL-treyju, hjól, kaffibolla og leikföng til sölu. Nánar um uppboðið hér.


Tengdar fréttir

Frá Heimaey til Indlands

David James, fyrrum markvörður enska landsliðsins, Liverpool og ÍBV verður spilandi þjálfari Kerala Blasters í indversku deildinni á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×