Enski boltinn

Rodgers: Verð rekinn fyrir slæmar ákvarðanir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, viðurkennir að hann muni missa starf sitt hjá félaginu ef hann tekur rangar ákvarðanir sem komi liðinu illa.

Ákvörðun hans að gera sjö breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Real Madrid í vikunni fellur hins vegar ekki í þann flokk að hans mati. Og hann þvertekur fyrir að hann hafi með liðsuppstillingu sinni gefið upp alla von um að vinna leikinn.

Rodgers sat fyrir svörum blaðamanna í gær en Liverpool mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Gera má ráð fyrir að hann kalli í alla sína bestu menn fyrir leikinn.

„Það eina sem ég gerði um daginn var að sýna að ég treysti liðinu og leikmannahópnum,“ sagði Rodgers. „Ég óttaðist aldrei að við myndum tapa þessum leik með sjö eða átta mörkum með þeim leikmönnum sem spiluðu.“

„Það kæmi aldrei til greina af minni hálfu. Ég myndi aldrei velja lið sem ég hefði ekki trú á. Það hef ég aldrei gert.“

„Maður verður að hafa hugrekki til að taka þær ákvarðanir sem knattspyrnustjóri þarf að taka. Fyrir það fáum við borgað. Ef maður tekur rangar ákvarðanir þá missir maður vinnuna - svo einfalt er það.“

„Þetta er áhættusamt en ég er sáttur við þær ákvarðanir sem ég hef tekið.“


Tengdar fréttir

Rodgers: Ég vissi hvað ég var að gera

Margir sökuðu Brendan Rodgers, stjóra Liverpool, um að kasta inn hvíta handklæðinu fyrir leikinn gegn Real Madrid í kvöld en liðið sem hann valdi fékk aðeins á sig eitt mark.

Brendan Rodgers: Real Madrid er líklega besta lið í heimi

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, reyndi að gera lítið úr vandræðum liðsins í varnarleiknum og viðurkenndi að Liverpool væri líklega að fara mæta besta lið heims á Santiago Bernabeu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×