Níundi deildarsigur Chelsea | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2014 00:01 Samlandarnir Coutinho og Ramires í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Chelsea hélt sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni áfram þegar Lundúnaliðið lagði Liverpool að velli með tveimur mörkum gegn einu á Anfield Road í stórleik helgarinnar. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir strax á 9. mínútu. Þar var að verki Emre Can með skoti fyrir utan vítateig sem fór í Gary Cahill, varnarmann Chelsea, og inn. Þetta var fyrsta mark Can fyrir Rauða herinn, en hann varð um leið sjötti leikmaður Liverpool sem skorar sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn Chelsea. Gleðin var þó skammvinn því aðeins fimm mínútum síðar jafnaði áðurnefndur Cahill metin með skoti af stuttu færi eftir að Simon Mignolet varði skalla Johns Terry. Belgíski markvörðurinn greip skot Cahills en marklínutæknin sýndi að boltinn var kominn inn fyrir. Staðan var 1-1 í hálfleik og fram á 67. mínútu þegar Diego Costa skoraði sitt 10. mark í ensku úrvalsdeildinni og kom Chelsea yfir. Brendan Rodgers, sem stillti upp mjög breyttu liði frá leiknum gegn Real Madrid í miðri viku, setti þá Joe Allen, Fabio Borini og Rickie Lambert alla inn á í seinni hálfleik, en þrátt fyrir það tókst Liverpool ekki að brjóta vörn Chelsea á bak aftur. Heimamenn hefðu þó líklega átt að fá vítaspyrnu undir lok leiksins þegar boltinn fór í hönd Cahills innan vítateigs. Fleiri urðu mörkin ekki og Chelsea styrkti stöðu sína í toppsæti úrvalsdeildarinnar. Liverpool er hins vegar búið að tapa þremur leikjum í röð í öllum keppnum og er aðeins með 14 stig eftir 11 deildarleiki.Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan:Emre Can kemur Liverpool yfir Gary Cahill jafnar Sigurmark Diego Costa
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira