Enski boltinn

Southampton áfram á sigurbraut | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aðeins fjögur mörk voru skoruð í fjórum leikjum sem er nýlokið í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester United bar sigurorð af Crystal Palace á Old Trafford eins og lesa má um hér.

Lygilegt gengi Southampton heldur áfram en Dýrlingarnir unnu sinn fjórða sigur í röð þegar þeir lögðu Leicester að velli með tveimur mörkum gegn engu á heimavelli. Shane Long skoraði bæði mörk Southampton í seinni hálfleik eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Með sigrinum minnkaði Southampton forskot Chelsea á toppi deildarinnar í fjögur stig, en Leicester er í vondum málum í fallsæti eftir fjóra tapleiki í röð.

Burnley vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar Hull kom í heimsókn á Turf Moor. Ashley Barnes skoraði eina mark leiksins á 50. mínútu, en Burnley er samt sem áður enn í botnsæti deildarinnar með sjö stig.

Þá fékk Aston Villa sitt fyrsta stig í deildinni síðan 13. september þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn West Ham á útivelli.

Klukkan 17:30 hefst svo leikur QPR og Manchester City á Loftus Road.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×