Enski boltinn

Newcastle upp fyrir Liverpool í töflunni - úrslit dagsins í enska

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Newcastle-menn fagna marki Fabricio Coloccini.
Newcastle-menn fagna marki Fabricio Coloccini. Vísir/Getty
Newcastle hélt sigurgöngu sinni áfram í ensku úrvalsdeildinni með 2-o útisigri á West Bromwich Albion í dag. Stoke vann á sama tíma óvæntan 2-1 sigur á Tottenham á White Hart Lane en Sunderland og Everton gerðu síðan jafntefli á Leikvangi Ljósanna í þriðja leiknum sem hófst klukkan 13.30.

Newcastle hoppaði upp fyrir Liverpool í stigatöflunni og fór upp að hlið Manchester United þegar liðið landaði sínum fjórða deildarsigri í röð en það bjuggust flestir við að knattspyrnustjórinn Alan Pardew yrði rekinn eftir skelfilega byrjun liðsins.

Ayoze Pérez og Fabricio Coloccini skoruðu mörk Newcastle í 2-0 sigri á WBA á The Hawthorns. Hollendingurinn Darryl Janmaat lagði upp bæði mörkin en það fyrra skoraði hinn ungi Pérez með skemmtilegri hælspyrnu fyrir utan markteig en það síðara kom eftir skalla Coloccini  á fjærstöng.

Newcastle náði aðeins í fjögur stig í fyrstu sjö umferðunum en hefur síðan unnið Leicester City, Tottenham Hotspur, Liverpool og svo WBA í dag. Liðið er komið með sextán stig og er því með jafnmörg stig og Manchester United og tveimur stigum meira en Liverpool.

Sunderland og Everton gerðu 1-1 jafntefli á Leikvangi Ljósanna en bæði mörkin komu á síðasta hálftíma leiksins.  Sebastian Larsson kom Sunderland í 1-0 með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu en Leighton Baines jafnaði níu mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Everton-liðið bjargaði á línu í uppbótartíma leiksins.

Stoke vann 2-1 útisigur á Tottenham á White Hart Lane þar sem að Bojan og Jonathan Walters komu Stoke-liðinu í 2-0 á fyrstu 33 mínútum leiksins. Nacer Chadli minnkaði muninn en Stoke-liðið stóðst pressuna undir lokin.



Úrslit og markaskorarar í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni:

Sunderland - Everton    1-1

1-0 Sebastian Larsson (67.), 1-1 Leighton Baines, víti (76.)

Tottenham - Stoke    1-2

0-1 Bojan (6.), 0-2 Jonathan Walters (33.), 1-2 Nacer Chadli (77.)

West Bromwich - Newcastle    0-2

0-1 Ayoze Pérez (45.), 0-2 Fabricio Coloccini (62.)

1-0 fyrir Newcastle 2-0 fyrir Newcastle 1-0 og 2-0 fyrir Stoke Tottenham minnkar muninn í 2-1



Fleiri fréttir

Sjá meira


×