Enski boltinn

Van Gaal: Mourinho gæti verið betri en ég

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Mourinho og Van Gaal hafa mæst áður
Mourinho og Van Gaal hafa mæst áður vísir/getty
Stórleikur Manchester United og Chelsea hefst klukkan 16 í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport og mætast þar þjálfarar sem þekkjast vel því Jose Mourinho var aðstoðarmaður Louis van Gaal hjá Barcelona.

Mourinho stýrir Chelsea og hefur hann sagt að Van Gaal stjóri Manchester United sé einn af þeim sem hvað mest áhrif hafa haft á hann sem þjálfara.

Chelsea er á toppi deildarinnar og hefur aðeins tapað tveimur stigum í átta umferðum. Man. Utd. er tíu stigum á eftir Chelsea.

Mourinho hefur á ótrúlegum ferli sínum unnið 20 titla með Porto, Inter, Real Madrid og Chelsea, einum meira en fyrrum lærimeistari sinn því Van Gaal hefur unnið 19 titla með Ajax, Barcelona, AZ og Bayern Munchen.

„Lið Jose eru alltaf vel skipulögð, það er það sem gerir hann að góðum þjálfara,“ sagði Louis van Gaal.

„Hann er einn besti þjálfarinn í heiminum. Ég held að hann gæti jafnvel verið betri en ég en við getum unnið þennan leik og ef ég vinn titil í einu landi til viðbótar verð ég jafningi hans á ný,“ sagði Van Gaal sem sagði of snemmt að dæma byrjun hans með Manchester United.

„Ég er bara búinn að vera hér í þrjá mánuði. Jose er búinn að vera lengur hjá Chelsea og það er því eðlilegt að hann sé kominn lengra með þróun síns liðs.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×