Newcastle sló meistarana úr leik á Etihad | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2014 21:58 Moussa Sissoko fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/AFP
Manchester City mátti sætta sig við að falla úr leik í enska deildabikarnum í kvöld eftir 2-0 tap gegn Newcastle á heimavelli sínum. City vann þessa keppni í fyrra en Newcastle er nú komið áfram í 8-liða úrslitin í fyrsta sinn undir stjórn Alan Pardew. Pardew hefur verið afar umdeildur í starfi í haust en virðist hafa náð að snúa gengi liðsins við á síðustu vikum. Newcastle vann ekki leik í fyrstu sex umferðum ensku úrvalsdeildarinnar en hefur nú unnið þrjá í röð í öllum keppnum. Táningurinn Rolando Aarons kom gestunum yfir strax á sjöttu mínútu með góðu skoti en bæði lið fengu færi til að skora í fyrri hálfleik. Það var svo Moussa Sissoko sem innsiglaði sigurinn á 75. mínútu leiksins og þar með sæti Newcastle í fjórðungsúrslitum keppninnar. Southampton er komið áfram eftir 3-2 sigur á Stoke á útivelli. Gestnirnir þurftu þó að hafa fyrir hlutunum en miklu munaði um að heimamenn misstu Peter Crouch af velli með rautt spjald á 73. mínútu. Graziano Pelle kom Southampton yfir á sjöttu mínútu og Shane Long bætti öðru marki við á 30. mínútu. Heimamenn komu þó af krafti inn í síðari hálfleikinn og jöfnuðu metin með mörkum Steven N'Zonzi og Mame Biram Diouf. Það var svo Pelle sem skoraði sigurmark Southampton skömmu eftir að Crouch fékk að líta sína aðra áminningu í leiknum. Tottenham komst einnig áfram með 2-0 sigri á Brighton. Erik Lamela og Harry Kane skoruðu mörk Lundúnarliðsins.
Fótbolti Mest lesið Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Fótbolti Stækkaði typpi skíðastökkvara Sport Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Enski boltinn Undir pressu vegna tengsla við Epstein: „Ég get ekki rekið hann“ Sport Hélt að hundurinn sem hljóp inn á brautina væri úlfur Sport Þurfti að flauta af æfingar áður en hann slasaði menn Körfubolti Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Sport Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Íslenski boltinn Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Sjá meira