Jarðarbúar verða 11 milljarðar við upphaf næstu aldar Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. september 2014 23:36 Ekkert lát virðist ætla verða á mannfjölgun á öldinni. Vísir/Stefán
Ný rannsókn Sameinuðu þjóðanna, sem framkvæmd var af University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum, hefur leitt í ljós að miklar líkur eru á því að jarðarbúum munu fjölga jafnt og þétt á öldinni. Þegar ný öld gengur í garð muni heimsbyggðin telja 11 milljarða – sem er um tveimur milljörðum meira en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Rannsóknin, sem birt var í dag í vísindatímaritinu Science, byggir á nýjustu tölum um mannfjöldaáætlanir og notast er við nýja aðferð við framkvæmd sambærilegra rannsókna. „Undanfarin tuttugu ár hafa menn verið sammála um að mannfjöldi myndi aukast um tvo milljarða áður en færi að hægja að fjölguninni og hún jafnvel ganga til baka,“ sagði Adrian Raferty, einn vísindamannanna sem stóð að rannsókninni. „Við komumst að þeirri niðurstöðu að um 70 prósent líkur væru á því að mannfjöldaþróunin myndi ekki ná jafnvægi á þessari öld. Fjöldi jarðarbúa, sem hefur fallið út af dagskrá heimsbyggðarinnar, er ennþá mikilvægt viðfangsefni.“Frá lestarstöð í Kína, fjölmennasta landi heims.Vísir/AFPMeð jafnvægi er átt að fæðingar verða jafnmargar og dauðsföll á hverju ári. Ef spárnar ganga eftir mun mesta fjölgunin eiga sér stað í Afríku þar sem mannfjöldi mun fjórfaldasta ef svo fer sem horfir – fara úr einum milljarða Afríkubúa upp í fjóra milljarða. Helsta ástæðan fyrir því er rakin til þess að ekki hefur dregið úr fæðingartíðni sunnan Sahara eyðimerkurinnar eins og fyrri spár gerðu ráð fyrir. Um 80 prósent líkur eru leiddar að því að íbúafjöldi Afríku verði á bilinu 3,5 til 5,1 milljarðar. Þá er talið að íbúar Asíu, sem nú eru um 4,4 milljarðar, muni fjölga um rúmar 700 milljónir áður en að þeim tekur að fækka á nýju. Íbúar annarra heimsálfa munu ekki rjúfa eins milljarðamúrinn. Sem fyrr byggja mannfjöldaspár á tveimur þáttum, fæðingar- og dánartíðni. Könnunin sem birtist í Science í dag tekur þá einnig mið af fólksflutningum milli landssvæða sem gætu haft töluverð áhrif á fyrrgreinda þætti.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira