City-menn sýndu styrk sinn gegn Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2014 15:35 Stevan Jovetic fagnar marki sínu. vísir/getty
Englandsmeistarar Manchester City sýndu styrk sinn í kvöld með því að vinna 3-1 sigur á Liverpool þegar tvö efstu lið síðasta tímabils mættust á á Ethidad-leikvanginum í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Manchester City er þar með fullt hús eftir tvær fyrstu umferðirnar alveg eins og Tottenham, Chelsea og Swansea. Liverpool er hinsvegar í 9. sætinu með 3 stig. Sigur Manchester City var sanngjarn og öruggur og Liverpool-liðið virðist ekki vera í sama klassa og City-menn. Svartfellingurinn Stevan Jovetic skoraði tvö fyrstu mörkin og Argentínumaðurinn Sergio Aguero skoraði þriðja markið aðeins nokkrum sekúndum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Liverpool minnkaði muninn undir lokin þegar Pablo Zabaleta varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir skalla Rickie Lambert. Liverpool-menn voru að gera ágæta hluti fram eftir leik og það leit ekki út fyrir skell. Þvert á móti gerði silfurliðið frá því í fyrra sig líklegt til að skora fyrsta markið í leiknum. City-menn refsa hinsvegar fyrir hver mistök og varnarmenn Liverpool-liðsins gerðu sig heldur betur seka um þau í kvöld. Fyrsta markið skoraði hinsvegar Stevan Jovetic á besta tíma, fjórum mínútum fyrir hálfleik. Hann nýtti sér klaufagang í vörn Liverpool og skoraði með góðu skoti. Jovetic bætti síðan við öðru marki eftir frábæra sókn eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Jovetic var allt í öllu í undirbúningnum og skoraði síðan með skoti úr teignum eftir sendingu frá Samir Nasri fyrir markið. Það tók síðan Sergio Aguero aðeins 23 sekúndur að komast á blað eftir að hafa komið inn á sem varamaður fyrir Edin Dzeko. Aguero fékk þá langa sendingu frá Jesus Navas inn fyrir sofandi vörn Liverpool og skoraði af öryggi.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira