Enski boltinn

Monaco fær markvörð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stekelenburg stóð í marki Hollands á HM 2010.
Stekelenburg stóð í marki Hollands á HM 2010. Vísir/Getty
Franska liðið Monaco hefur fengið markvörðinn Maarten Stekelenburg á láni frá Fulham. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.

Stekelenburg kom til Fulham fyrir síðustu leiktíð, en náði sér ekki á strik með Lundúnaliðinu sem féll niður um deild í vor.

Stekelenburg hóf feril sinn hjá Ajax þar sem hann lék til ársins 2011, þegar hann gekk til liðs við Roma á Ítalíu.

Hann hefur leikið 54 landsleiki fyrir Holland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×