Leystu upp nýliðunarnet Íslamista Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. ágúst 2014 19:22 Íraskur hermaður leikur á strengjahljóðfæri á vígstöðvunum í norðurhluta landsins. Vísir/AFP
Marokkóska lögreglan, í samstarfi við spænsk löggæsluyfirvöld, leysti á dögunum upp glæpahring sem grunaður er um að hafa safnað saman herskáum Íslamistum í landinu til að berjast fyrir Íslamska ríkið í átökunum sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs. Samtökin eru jafnframt grunuð um að fyrirhuga árásir á marokkóskar borgir og sagði lögreglan í kjölfar handtakanna að í bækistöðvum glæpahringsins hefði verið að finna gögn þess efnis. Mennirnir níu sem handteknir voru eru grunaðir um að hafa rekið starfsemi sína í borgunum Fnideq, Tetouan og Fez í norðurhluta landsins og áætlað er að fyrirhugaðar árásir hefðu beinst gegn borgunum þremur. Glæpahringurinn er þá einnig talinn hafa stutt Íslamska ríkið fjárhagslega en Íslamistunum sem ráðnir voru í Marokkó var ætlað að fá þjálfun í meðhöndlun skotvopna, bílaþjófnaði og bardagaaðferðum í Sýrlandi og Írak. Innanríkisráðherra Spánar sagði í yfirlýsingu til þarlendra fjölmiðla að allir þeir sem voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar væru af marakóskum uppruna og að einhverjir þeirra hefðu tengsl við Spán. Þetta er í þriðja sinn á árinu sem spænska lögreglan hefur leyst upp samtök sem þessi. Tugþúsund múslima um allan heim hafa gripið til vopna í kjölfar átakanna í Írak og gengið til liðs við Íslamska ríkið.
Tengdar fréttir Frakkar senda Kúrdum vopn Frakklandsforseti tilkynnti um ákvörðunina í hádeginu og hafa stjórnvöld í Írak þegar veitt samþykki sitt. 13. ágúst 2014 12:53 Obama ánægður með nýjan forsætisráðherra Íraka Obama Bandaríkjaforseti segir að skipun Haider al-Abadi í embætti forsætisráðherra í Írak sé skref fram á við sem lofi góðu. Uppgangur herskáu samtakanna sem kalla sig Íslamska ríkið og ráða nú lögum og lofum á stórum landssvæðum í Írak og í Sýrlandi hafa aukið mjög á óvissuna um framtíð Íraks. 12. ágúst 2014 08:23 Ólíklegt að Jasídarnir verði sóttir Nú er talið ólíklegt að Bandaríkjamenn setji upp loftbrú til þess að flytja fólk af ættbálki Jasída af Sinjar fjalli í Írak. Þar hefur fólkið hafist við síðustu vikur eftir að það flúði unan hersveitum hins Íslamska ríkis sem ræður nú yfir stórum landsvæðum í Írak. 14. ágúst 2014 07:05 Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Vígamenn íslamska ríkisins eira engu í Írak og Sýrlandi. 14. ágúst 2014 13:40 Bandarískir hermenn komnir til Íraks Sérsveitarmennirnir eru lentir í Sindjar-fjöllum þar sem þeim er ætlað að aðstoða Jasaída. Einungis þrjú ár eru síðan bandarískar hersveitir yfirgáfu landið. 13. ágúst 2014 23:28 Björguðu óttaslegnum flóttamönnum um borð í þyrlu Fréttamaður og myndatökumaður CNN slógust í för með írakska flughernum fyrr í vikunni. 13. ágúst 2014 15:32 Styður aðgerðir Bandaríkjanna í Írak Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins leggur blessun sína yfir loftárásir í Írak 13. ágúst 2014 17:08 Bandarískir ráðgjafar komnir til Íraks Rúmlega 130 bandarískir hernaðarráðgjafar eru nú komnir til Kúrdahéraðanna í Írak. Þetta segir Chuck Hagel varnarmálaráðherra landsins. Hann ítrekar þó að hermennirnir taki ekki þátt í bardögum heldur séu þeir að meta ástandið og þörfina á neyðaraðstoð en samtökin sem kalla sig Íslamska ríkið ráða yfir stórum hlutum svæðisins og eru talin hafa ráðist hatrammlega að minnihlutahópum af annarri trú. 13. ágúst 2014 08:34 Bandaríkjastjórn íhugar að senda fleiri hernaðarráðgjafa til Íraks Að sögn bandarískra embættismanna íhugar Bandaríkjastjórn að senda fleiri hernaðarráðgjafa til Íraks, í því skyni að herða baráttuna gegn samtökunum IS, Íslamskt ríki, sem nú ógna minnihlutahópum í landinu og Kúrdum 12. ágúst 2014 22:22 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Fleiri fréttir Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Sjá meira
Frakkar senda Kúrdum vopn Frakklandsforseti tilkynnti um ákvörðunina í hádeginu og hafa stjórnvöld í Írak þegar veitt samþykki sitt. 13. ágúst 2014 12:53
Obama ánægður með nýjan forsætisráðherra Íraka Obama Bandaríkjaforseti segir að skipun Haider al-Abadi í embætti forsætisráðherra í Írak sé skref fram á við sem lofi góðu. Uppgangur herskáu samtakanna sem kalla sig Íslamska ríkið og ráða nú lögum og lofum á stórum landssvæðum í Írak og í Sýrlandi hafa aukið mjög á óvissuna um framtíð Íraks. 12. ágúst 2014 08:23
Ólíklegt að Jasídarnir verði sóttir Nú er talið ólíklegt að Bandaríkjamenn setji upp loftbrú til þess að flytja fólk af ættbálki Jasída af Sinjar fjalli í Írak. Þar hefur fólkið hafist við síðustu vikur eftir að það flúði unan hersveitum hins Íslamska ríkis sem ræður nú yfir stórum landsvæðum í Írak. 14. ágúst 2014 07:05
Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Vígamenn íslamska ríkisins eira engu í Írak og Sýrlandi. 14. ágúst 2014 13:40
Bandarískir hermenn komnir til Íraks Sérsveitarmennirnir eru lentir í Sindjar-fjöllum þar sem þeim er ætlað að aðstoða Jasaída. Einungis þrjú ár eru síðan bandarískar hersveitir yfirgáfu landið. 13. ágúst 2014 23:28
Björguðu óttaslegnum flóttamönnum um borð í þyrlu Fréttamaður og myndatökumaður CNN slógust í för með írakska flughernum fyrr í vikunni. 13. ágúst 2014 15:32
Styður aðgerðir Bandaríkjanna í Írak Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins leggur blessun sína yfir loftárásir í Írak 13. ágúst 2014 17:08
Bandarískir ráðgjafar komnir til Íraks Rúmlega 130 bandarískir hernaðarráðgjafar eru nú komnir til Kúrdahéraðanna í Írak. Þetta segir Chuck Hagel varnarmálaráðherra landsins. Hann ítrekar þó að hermennirnir taki ekki þátt í bardögum heldur séu þeir að meta ástandið og þörfina á neyðaraðstoð en samtökin sem kalla sig Íslamska ríkið ráða yfir stórum hlutum svæðisins og eru talin hafa ráðist hatrammlega að minnihlutahópum af annarri trú. 13. ágúst 2014 08:34
Bandaríkjastjórn íhugar að senda fleiri hernaðarráðgjafa til Íraks Að sögn bandarískra embættismanna íhugar Bandaríkjastjórn að senda fleiri hernaðarráðgjafa til Íraks, í því skyni að herða baráttuna gegn samtökunum IS, Íslamskt ríki, sem nú ógna minnihlutahópum í landinu og Kúrdum 12. ágúst 2014 22:22