Enski boltinn

Isla til QPR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Isla í baráttunni við Neymar í leik Chile og Brasilíu á HM.
Isla í baráttunni við Neymar í leik Chile og Brasilíu á HM. Vísir/Getty
Chile-maðurinn Mauricio Isla hefur gert eins árs lánssamning við enska úrvalsdeildarliðið Queens Park Rangers.

Isla, sem er 26 ára, kemur frá Juventus þar sem hann hefur spilað tvö síðustu tímabil. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Harry Redknapp fær til QPR í sumar.

Isla lék alla fjóra leiki Chile á HM í Brasilíu.


Tengdar fréttir

Enski boltinn: Sumarið hjá QPR

Harry Redknapp og lærisveinar hans í Queens Park Rangers komust á dramatískan hátt upp í ensku úrvalsdeildina eftir sigur á Derby County í úrslitaleik á Wembley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×