Enski boltinn

Rodwell vonast eftir landsliðssæti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jack Rodwell í búningi Sunderland.
Jack Rodwell í búningi Sunderland. vísir/getty
Jack Rodwell, miðjumaðurinn sem gekk í raðir Sunderland frá Manchester City í gær, vonast til að fá aftur sæti í enska landsliðinu þegar hann fer að spila meira í ensku úrvalsdeildinni.

Rodwell spilaði aðeins 16 deildarleiki fyrir Manchester City á tveimur leiktíðum og missti eðlilega sæti sitt í landsliðinu, en hann var á dögum sínum hjá Everton talinn einn af efnilegri leikmönnum þjóðarinnar.

Rodwell hefur ekki spilað nema sex mínútur fyrir England síðan 2011, en hann vonast nú til að heilla Roy Hodgson þegar hann fer að spila reglulega fyrir Sunderland.

„Að spila reglulega skiptir mig mestu máli núna. Því er þetta frábær staður fyrir mig að koma á. Ég mun gefa gefa allt í þetta og leggja mig 100 prósent fram í hverjum leik. Vonandi get ég skorað nokkur mörk og orðið góður miðjumaður sem hleypur frá teig í teig,“ segir Rodwell.

„Síðustu tvær leiktíðir voru mér erfiðar og ég spilaði ekki jafnmikinn fótbolta og ég hefði viljað. Ég var með óbragð í munni að horfa á HM því ég vildi vera með landsliðinu. Nú get ég leiðrétt þetta allt saman og vonandi komist aftur í landsliðshópinn,“ segir Jack Rodwell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×