Unglingaliðsmaður Manchester United sló 25 ára gamalt met Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. ágúst 2014 17:00 Williams í leik með U16-ára landsliði Englands. Vísir/Getty
RoShaun Williams, 15 ára unglingaliðsmaður hjá Manchester United, hefur slegið 25 ára gamalt skólamet Ólympíuverðlaunahafans Darren Campbell í 100 metra hlaupi. Williams hljóp 100 metrana á 10,99 sekúndum í venjulegum íþróttatíma í Ashton-on-Mersey skólanum, sem hefur verið sérstakur íþróttaskóli síðan 1998. Manchester United er einn af aðalstyrktaraðilum skólans. Williams, sem hefur verið á mála hjá Manchester United síðan hann var níu ára, hafði ekki hugmynd um að hann hefði slegið metið fyrr en kennari hans tilkynnti honum það. Campbell setti gamla metið árið 1989, en hann kom þá í mark á 11,13 sekúndum. Campbell átti farsælan feril sem spretthlaupari, en hann vann m.a. til gullverðlauna í 4x100m boðhlaupi á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004. Fjórum árum fyrr í Sydney vann Campbell til silfurverðlauna í 200m hlaupi. Hann vann auk þess til verðlauna á heims- og Evrópumeistaramótum og Samveldisleikunum. Eftir að hafa frétt af afreki Williams sendi Campbell, sem hefur unnið með ýmsum fótboltaliðum (þ.á.m. Manchester United) síðan hann lagði hlaupaskóna á hilluna, frá sér myndband þar sem hann óskaði Williams til hamingju með að hafa slegið metið sitt. Það athyglisverðasta er kannski að Williams hefur aldrei keppt í 100m hlaupi né æft það sérstaklega, en aðaláhersla hans er á fótboltann. Hann stefnir að því að komast í aðallið Manchester United, en aðalhetjan hans er Ryan Giggs, núverandi aðstoðarþjálfari United.
Enski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Afmælisdagurinn sem aldrei kom Sport Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira