Skotar deila líka hart um ummæli Junckers Atli Ísleifsson skrifar 17. júlí 2014 13:57 Alex Salmond, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, segir sambandssinna hafa afbakað ummæli Junckers og fer fram á afsökunarbeiðni. Vísir/AFP
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur varað við að Skotar gætu þurft að standa utan Evrópusambandsins í nokkur ár, ákveði þeir að kjósa með sjálfstæði í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu 18. september næstkomandi. Skoskir sjálfstæðissinnar hafa sakað sambandssinna um að draga upp ranga mynd af Jean-Claude Juncker, verðandi forseta framkvæmdastjórnar ESB, og nýlegum ummælum hans um stækkunarstefnu sambandsins sem einnig vöktu athygli hér á landi. Juncker lýsti því yfir að fimm ára hlé yrði gert á frekari stækkun sambandsins. Cameron sagði ummæli Juncker miklu skipta í kosningabaráttunni. Skoskir sjálfstæðissinnar eru hins vegar allt annað en ánægðir með Cameron og aðra sambandssinna og segja þá vísvitandi afbaka ummæli Junckers og að þau eigi ekki við í tilviki mögulegs sjálfstæðs ríkis Skota. Á vef Telegraph segir að sjálfstæðissinnar hafi farið fram á afsökunarbeiðni eftir að talsmaður forseta framkvæmdastjórnarinnar sagði Juncker hafa átt við umsóknarríki utan ESB og ættu þau því ekki við um Skotland. Alex Salmond, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar og helsti leiðtogi sjálfstæðissinna, vill að Skotland fái flýtimeðferð og gerist þannig 29. aðildarríki ESB. Telur hann að mögulegt sé að semja um ESB-aðild sjálfstæðs Skotlands á átján mánuðum frá atkvæðagreiðslunni í september og þar til að Skotland segði sig úr lögum við Bretland í mars 2016.
Tengdar fréttir Össur segir ESB umsókn í fullu gildi Össur Skarphéðinsson segir afstöðu Jean-Claude Juncker passa Íslendingum vel. Ný ríkisstjórn geti klárað aðildarviðræður innan fimm ára. 17. júlí 2014 13:15 Ráðherra segir Juncker loka endanlega ESB umsókn Íslands Utanríkisráðherra segir nýjan forseta framkvæmdastjórnar ESB í raun hafa lokað aðildarferli Íslands með yfirlýsingum sínum án þess að Íslendingar hafi þurft að hafa mikið fyrir því. 16. júlí 2014 19:39 Íslensk stjórnvöld ráða framhaldi ESB viðræðna Jean-Claude Juncker nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB vill fimm ára hlé á stækkunarferlinu. Íslensk stjórnvöld ráða framhaldi aðildarviðræðna að mati Eiríks Bergmanns. 16. júlí 2014 14:00 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira
Össur segir ESB umsókn í fullu gildi Össur Skarphéðinsson segir afstöðu Jean-Claude Juncker passa Íslendingum vel. Ný ríkisstjórn geti klárað aðildarviðræður innan fimm ára. 17. júlí 2014 13:15
Ráðherra segir Juncker loka endanlega ESB umsókn Íslands Utanríkisráðherra segir nýjan forseta framkvæmdastjórnar ESB í raun hafa lokað aðildarferli Íslands með yfirlýsingum sínum án þess að Íslendingar hafi þurft að hafa mikið fyrir því. 16. júlí 2014 19:39
Íslensk stjórnvöld ráða framhaldi ESB viðræðna Jean-Claude Juncker nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB vill fimm ára hlé á stækkunarferlinu. Íslensk stjórnvöld ráða framhaldi aðildarviðræðna að mati Eiríks Bergmanns. 16. júlí 2014 14:00