Enski boltinn

Messan: Besti leikur tímabilsins var spilaður í Bítlaborginni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Messudrengirnir Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson fóru yfir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í síðustu messu leiktíðarinnar í gær og völdu meðal annars besta leik tímabilsins.

Leikur ársins í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2013-14 var leikur nágrannanna Everton og Liverpool á Goodison Park 23. nóvember.

Bæði liðin áttu flott tímabil og náði sínum besta árangri í langan tíma. Liverpool endaði í 2. sæti og Everton var nálægt því að komast í Meistaradeildina en endaði að lokum í 5. sæti.

Gummi Ben lýsti leiknum sem endaði með 3-3 jafntefli. Það er hægt að sjá skemmtilegt myndband með þessum leik ársins með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×