Brendan Rodgers vill taka vel til í leikmannahópi Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2014 11:30 Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Daily Telegraph hefur heimildir fyrir að Liverpool stefni á það að safna 30 milljónum punda með sölum á leikmönnum í sumar en meðal leikmanna sem eru hugsanlega á förum eru Daniel Agger, Lucas og Fabio Borini. Liverpool náði sínum besta árangri í langan tíma í ensku úrvalsdeildinni á nýloknu tímabili og var nálægt því að enda 24 ára bið sína eftir enska meistaratitlinum. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri félagsins, ætlar engu að síður að taka vel til í leikmannahópi liðsins fyrir næsta tímabil sem verður það fyrsta í Meistaradeildinni í nokkurn tíma. Rodgers hefur sett saman sölulista með fjórtán leikmönnum og ætlar sér einnig að styrkja hópinn með fimm til sex sterkum leikmönnum. Það er því von á miklum breytingum á Anfield í sumar. Liverpool keypti þá Iago Aspas og Luis Alberto síðasta sumar en mun reyna að losna við þá ári seinna enda náði hvorugur þeirra sér á strik í búningi Liverpool. Liverpool hefur ekki áhuga á því að framlengja lánsamninga Victor Moses og Aly Cissokho og þá er líklegt að félagið nái að selja bæði Fabio Borini (lánaður til Sunderland) og Oussama Assaidi (lánaður til Stoke) sem stóðu sig vel hjá "nýjum" félögum á tímabilinu. Daniel Agger er eftirsóttur og vitað er af áhuga Barcelona. Liverpool gæti hugsanlega fengið tólf milljónir punda fyrir hann. Lucas Leiva gæti líka verið seldur fái félagið gott tilboð í hann.
Enski boltinn Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Fleiri fréttir Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Sjá meira