Enski boltinn

Rooney segir ensku pressuna viðbjóðslega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, hefur ekki mikið álit á enskum fjölmiðlum.

Rooney er nú staddur á Portúgal í fríi með fjölskyldu sinni en hann fullyrti á Twitter-síðu sinni í gær að hann hafi verið eltur af pressunni.

„Viðbjóðslegt að enska pressan hafi flogið út til Portúgals þar sem ég er í fríi með konu minni og börnum,“ skrifaði Rooney.

Að fríinu loknu hefst undirbúningur enska landsliðsins fyrir HM í Brasilíu síðar í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×