Enski boltinn

Pepe Mel: Wenger hefði ekki enst jafn lengi á Spáni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pepe Mel, þjálfari West Brom.
Pepe Mel, þjálfari West Brom. Vísir/Getty
Eins og frægt er orðið eru liðin átta ár síðan Arsenal vann síðast titil.

Nú stendur yfir leikur Arsenal og West Brom á Emirates vellinum, en fyrir leikinn sagði Pepe Mel, þjálfari West Brom, að á Spáni, heimalandi hans, hefði þessi langa bið eftir titli líklega kostað Arsene Wenger starfið.

"Ég tel að Wenger hefði ekki enst jafn lengi í starfi á Spáni," sagði Mel, sem tók við liði West Brom af Steve Clarke í byrjun ársins.

"Carlo Ancelotti hjá Real Madrid er gott dæmi. Fyrir þremur mánuðum var hann undir mikilli pressu, en nú er hann kominn með Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

"Það er alltaf sama sagan á Spáni, Englandi og í Þýskalandi, þjálfarinn stendur og fellur með úrslitunum.

"En það kemur mér ekki á óvart að Wenger sé enn í starfi og ég er sammála Arsenal. Hann hefur góða sýn á leikinn," sagði Mel að lokum.

Arsenal á þó góðan möguleika á að vinna titil í ár, en þann 17. maí mætir liðið Hull City í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×