Enski boltinn

Liverpool gerði sitt en það dugði ekki til

Agger jafnar fyrir Liverpool
Agger jafnar fyrir Liverpool vísir/afp
Liverpool lagði Newcastle 2-1 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Manchester City vann einnig sinn leik og því lauk Liverpool leik í öðru sæti deildarinnar.

Newcastle komst yfir á 20. mínútu með fjórða sjálfsmarki Martin Skrtel á leiktíðinni sem er met í ensku úrvalsdeildinni.

Newcastle lék vel í fyrri hálfleik og var 1-0 yfir í hálfleik.

Allt annað var uppi á teningnum í seinni hálfleik. Þá voru yfirburði Liverpool miklir en liðið fékk tvö nánast eins mörk á tveimur mínútum sem tryggði liðinu sigurinn og annað sætið í deildinni.

Á 63. mínútu tók Steven Gerrard aukaspyrnu sem fann Daniel Agger á fjærstöng og hann kom boltanum í netið úr þröngu færi.

Tveimur mínútum seinna tók Gerrard aftur aukaspyrnu og nú var það Daniel Sturridge sem var mættur á fjærstöng og kom hann boltanum yfir marklínuna.

Sanngjarn sigur Liverpool en Newcastle fékk tvær brottvísanir eftir að Liverpool komst yfir.

Fjórða sjálfsmark Skrtel í vetur. Tvö alveg eins mörk hjá Liverpool.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×