Enski boltinn

Demba Ba óánægður í herbúðum Chelsea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Demba Ba og Branislav Ivanovic
Demba Ba og Branislav Ivanovic Vísir/Gettyimages
Demba Ba sem reyndist hetja Chelsea manna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar ætlar sér að finna nýtt lið í sumar.

Ba hefur þurft að sætta sig við mikla bekkjarsetu á tímabilinu en Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea hefur notað Samuel Eto'o og Fernando Torres framyfir Ba.

Ba sem hefur spilað 29 leiki fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni hefur yfirleitt komið af bekknum og er orðinn þreyttur á því að fá ekki tækifæri. Talið er nokkuð öruggt að Chelsea muni styrkja sóknarlínu sína í sumar og hefur Diego Costa, framherji Atletico Madrid verið orðaður við liðið undanfarið.

„Ég fer héðan í sumar, ég vill fá að spila nítíu mínútur og reyna að njóta þess að spila fótbolta. Ég hef ekki fengið mikinn spilatíma í vetur og ég efast um að hlutirnir munu breytast,“

Ba hefur verið orðaður við PSG og var hann opinn fyrir hugmyndinni að spila fyrir Parísarliðið.

„Þótt þeir séu aðallega að skoða alþjóðlegar stjörnur sem kosta 50 milljónir þá held ég að ég geti spilað vel við hliðiná Zlatan(Ibrahimovic). Það eru spennandi tímar framundan hjá PSG og það er aðeins tímaspursmál hvenær félagið vinnur Meistaradeildina,“ sagði Ba að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×