Enski boltinn

Yaya Toure ekki með í næstu þremur leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Yaya Toure.
Yaya Toure. Vísir/Getty
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, býst við því að vera án miðjumannsins Yaya Toure í kringum tvær vikur en leikmaðurinn meiddist í fyrri hálfleik í tapinu á móti Liverpool um helgina.

Pellegrini talaði um meiðsli Yaya Toure á blaðamannafundi fyrir leik Manchester City og Sunderland sem fer fram á morgun. Hann segir meiðslin ekki eins alvarleg og óttast var um í fyrstu en að leikmaðurinn verði ekki með í næstu þremur leikjum liðsins.

Yaya Toure mun því væntanlega missa af leikjum á móti Sunderland, West Brom og Crystal Palace en gæti aftur á móti náð síðustu þremur leikjum tímabilsins á móti Everton, Aston Villa og West Ham.

Yaya Toure er gríðarlega mikilvægur fyrir Manchester City liðið sem sést ekki síst á því að hann er búinn að koma með 18 mörk og 5 stosðendingar af miðjunni í 31 leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×