Henderson hetja Liverpool gegn Swansea Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. febrúar 2014 00:01
Jordan Henderson tryggði Liverpool stigin þrjú í stórskemmtilegum 4-3 sigri á Swansea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lítið var um fína drætti í varnarleik liðanna og er óhætt að segja að áhorfendur leiksins hafi fengið nóg fyrir peninginn. Öll toppliðin unnu sína leiki í gær og þurftu þeir rauðklæddu á stigunum þremur að halda til að halda í við þau. Heimamenn fengu sannkallaða óskabyrjun þegar Daniel Sturridge skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins tvær mínútur. Henderson bætti við öðru marki Liverpool stuttu seinna gegn gangi leiksins en gestirnir frá Wales höfðu haft undirtökin í leiknum.Jonjo Shelvey sem gekk til liðs við Swansea í sumar frá Liverpool kom Swansea á blað með stórglæsilegu skoti örfáum mínútum eftir mark Henderson og liðu aðeins fjórar mínútur þar til Wilfried Bony hafði jafnað metin með skalla. Daniel Sturridge skoraði þriðja mark Liverpool þegar tíu mínútur voru til hálfleiks og fóru heimamenn með 3-2 forskot inn í hálfleikinn. Í seinni hálfleik voru áhorfendur enn að setjast niður þegar Swansea jafnaði aftur metin. Þá var dæmd vítaspyrna á Martin Skrtel fyrir að toga niður Bony í vítateig Liverpool. Bony steig sjálfur á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi. Jafnræði var með liðnum það sem eftir lifði leiksins en það voru heimamenn sem náðu að koma inn sigurmarki. Jordan Henderson fylgdi þá eftir eigin skoti og ýtti boltanum yfir línuna framhjá Michel Vorm í marki Swansea. Heimamenn héldu út það sem eftir lifði leiks og voru líklegri að bæta við þegar skot Steven Gerrard hafnaði í stönginni en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og lauk leiknum með 4-3 sigri Liverpool í fjörugum leik.
Enski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti Fleiri fréttir Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Sjá meira