Wenger telur skammtímasjónarmið tilefni félagaskipta Mata Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. janúar 2014 12:45 Arsene Wenger og Jose Mourinho. Vísir/AFP
Arsene Wenger segir að yfirvofandi sala Chelsea á Juan Mata sé í þeim tilgangi að styrkja stöðu Manchester United í leikjum gegn keppinautum Lundúnaliðsins.Chelsea vann 3-1 sigur á Manchester United í leik liðanna á sunnudaginn. Liðin höfðu áður gert markalaust jafntefli á Old Trafford í ágúst og hafa því þegar mæst í báðum leikjum liðanna á leiktíðinni. United á enn eftir að mæta Arsenal og Manchester City í síðari viðureignum liðanna en liðin eiga í hörkukeppni við Chelsea í toppsætum úrvalsdeildarinnar. „Félagaskiptin koma mér á óvart enda Mata frábær leikmaður og verið að selja leikmann til keppinauta,“ segir Wenger. Hann bendir á að Chelsea hefði getað selt Mata til United fyrir viðureign liðanna á Stamford Bridge en það hafi félagið hins vegar ekki gert. Wenger segir það galla á reglum um félagaskipti að hægt sé að tímasetja þau líkt og hann telur Chelsea hafa gert í þessu tilfelli. Hann segir að skammtímasjónarmið Chelsea um árangur á yfirstandandi tímabili gæti komið í bakið á félaginu. Manchester United sé risi þótt liðið sé í dvala. „Ég lít ekki sömu augum á Manchester United og þú,“ sagði Wenger við spurningu blaðamanns á fundi í gær. „Þetta er stuttur tími í sögu félagsins og ég tel félagið ekki í hnignun. Þetta getur komið fyrir öll félög en þeir munu rísa úr öskunni, ekki hafa neinar áhyggjur af því.“Arsenal mætir Coventry í enska bikarnum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira